
Rafmagnsvörubílar þurfa meira en hleðslustöð.
Við hönnum hleðsluinnviði fyrir vörubíla, rútur og flota: rétta stærð heimtaugar, réttan fjölda hleðslustöðva og álagsstýringu sem heldur kostnaði niðri. Allt byggt á raunverulegum rekstri, ekki hámarksafli.
Það sem þú færð
Hleðsluinnviðir í réttri stærð
Við hönnum fjölda og afl hleðslustöðva og stærð heimtaugar út frá rekstrinum, hvorki meira né minna en þarf.
Rafvæða núna, ekki þegar dreifikerfið er tilbúið
Við sýnum hve stóran hluta flotans núverandi heimtaug ber nú þegar.
Allir fara fullhlaðnir
Bílarnir hlaðnir og forhitaðir fyrir fyrstu ferð, sumar og vetur, skipulagt út frá áætluninni.
Lægri aflkostnaður, á hverju ári
Lægri afltoppur þýðir minni heimtaug og lægri aflgjöld.
Tveir upphafspunktar
Ekki byrjuð
Gerið þetta rétt áður en byggt er. Fjöldi hleðslustöðva, afl og heimtaug eru ákveðin út frá áætluninni, búnaður keyptur einu sinni og hleðsluinnviðirnir stækka í takt við flotann.
Þegar með hleðslu
Bætið við bílum án nýrrar heimtaugar, lækkið afltoppinn og aflgjöldin og prófið hve vel núverandi uppsetning þolir áföll.
Við seljum hvorki hleðslustöðvar né búnað, svo ráðgjöfin miðast við flotann, aksturinn og bækistöðina.
Frá heimtaug að hleðslustöð
Við vinnum með flotafyrirtækjum, rekstraraðilum hleðslustöðva og dreifiveitum. Verkefnin ná frá fyrstu greiningu að útboði og innleiðingu.
Hleðsluinnviðir fyrir flota
Vörubílar, rútur og sendibílar. Hleðsluáætlun út frá akstri, fjöldi og afl hleðslustöðva, stærð heimtaugar og hönnun innviða í bækistöð.
NánarHermun og hönnun
Hermun á hleðsluþörf í ChargeSim, álagsstýring, hámarksafl og rafmagnshönnun. Svarar því hvað þarf raunverulega áður en fjárfest er.
NánarRafhlöður og orkustýring
Rafhlöðukerfi (BESS), sólarorka og orkustýring (EMS) til álagsjöfnunar og þar sem flutningsgeta dreifikerfis er takmörkuð. Kerfishönnun, kröfur og prófanir.
NánarKröfulýsingar, útboð og innkaup
Markaðskannanir (RFI), kostnaðaráætlanir, útboðsgögn, matslíkön og samningsstjórnun. Reynsla af EES útboðum á hleðsluinnviðum, hleðslu sem þjónustu og bakendakerfum.
NánarCPMS og vöruþróun fyrir rekstraraðila
Val og innleiðing á bakendakerfi (CPMS), kerfisuppbygging, greiðslulausnir og þróun nýrrar þjónustu fyrir hleðslunet.
NánarErtu að rafvæða flota?
Fyrsta samtalið er stutt og án skuldbindinga. Sendu okkur línu og við finnum út hvað þarf.
Senda tölvupóstValin verkefni
Dæmi um verkefni fyrir flotafyrirtæki, rekstraraðila og dreifiveitur.

Flutningafyrirtæki
Úr 2 í 20 rafknúna vörubíla í þremur áföngum
Aflþörf og áfangaskipt uppbygging hleðsluinnviða fyrir flutningafyrirtæki sem rafvæðir vörubílaflotann í skrefum. Ein hleðsluaðstaða í bækistöð dugar öllum flotanum.
2 → 4 → 20 vörubílar · 315 A → 900 A

Strætó bs. og Kynnisferðir
Hleðsluinnviðir í bækistöð fyrir 70 strætisvagna
Hönnun á hleðsluinnviðum fyrir 70 rafmagnsstrætisvagna í bækistöð, með 3,5 MW afli, háspennudreifingu innan svæðis og þremur spennistöðvum. Verkið lagði tæknilegan grunn að útboði.
3,5 MW · 70 vagnar · 3 spennistöðvar

Strætó bs.
Útboð á hleðslu sem þjónustu (CaaS)
Markaðskönnun og EES útboð á hleðsluinnviðum og rekstri þeirra sem þjónustu fyrir rafvagnaflota Strætó. Eitt fyrsta útboð sinnar tegundar á Íslandi.
RFI · EES útboð
Meðal viðskiptavina
- Strætó bs.
- Orka náttúrunnar
- RARIK
- Reykjavíkurborg
- Orkubú Vestfjarða
- Kynnisferðir
Ertu að rafvæða flota?
Fyrsta samtalið er stutt og án skuldbindinga. Sendu okkur línu og við finnum út hvað þarf.
Senda tölvupóst- Netfang
- enord@enord.is
- Sími
- 840 4935
- Hrafn Leó Guðjónsson
- Staðsetning
- Reykjavík