Öll verkefni

Strætó bs. · Almenningssamgöngur

Útboð á hleðslu sem þjónustu (CaaS)

Markaðskönnun og EES útboð á hleðsluinnviðum og rekstri þeirra sem þjónustu fyrir rafvagnaflota Strætó. Eitt fyrsta útboð sinnar tegundar á Íslandi.

RFI · EES útboð

Útboð á hleðslu sem þjónustu (CaaS)

Áskorunin

Strætó þurfti að kaupa hleðsluinnviði og rekstur fyrir stækkandi rafvagnaflota og var bundið af EES reglum um opinber innkaup. Markaðurinn var enn í mótun og birgjar buðu ólíkar tæknilausnir og viðskiptalíkön. Hættan var að fá tilboð sem ekki væri hægt að bera saman, eða að bindast lausn sem hentaði illa til lengri tíma.

Hvað gerðum við

  • Gerðum markaðskönnun (RFI) til að kortleggja tæknilausnir og viðskiptalíkön birgja
  • Þýddum rekstrarþarfir flotans yfir í tæknilegar kröfur og þjónustustig
  • Skrifuðum útboðsgögn fyrir hleðslu sem þjónustu innan EES ramma, með matslíkani og verðlíkani
  • Aðstoðuðum við mat tilboða og samningsgerð

Niðurstaða

  • Skýr mynd af markaðnum áður en útboðið var skrifað
  • Útboð sem skilaði sambærilegum tilboðum og minni áhættu
  • Samningur um hleðslu sem þjónustu sem styður rafvæðingu flotans

Lærdómur

Í flóknum innviðaverkefnum borgar sig að gera markaðskönnun áður en útboð er skrifað.

Tengd þjónusta

Með svipað verkefni í huga?

Fyrsta samtalið er stutt og án skuldbindinga. Sendu okkur línu og við finnum út hvað þarf.

Senda tölvupóst
Netfang
enord@enord.is
Sími
840 4935
LinkedIn
Hrafn Leó Guðjónsson
Staðsetning
Reykjavík