Hleðsluinnviðir fyrir flota
Hleðsluinnviðir sem henta rekstrinum
Rafvæðing flota stendur og fellur með hleðslunni. Við greinum aksturinn, reiknum hleðsluþörfina og hönnum innviði sem duga fyrir daglegan rekstur án þess að heimtaugin verði stærri en hún þarf að vera.

Fyrir hverja
Flutningafyrirtæki, rútufyrirtæki, sveitarfélög og aðra sem reka vörubíla, rútur eða sendibíla og eru að skipta yfir í rafmagn.
Hvað gerum við
- Greinum orku- og aflþörf út frá raunverulegum akstri og stöðutíma bílanna
- Setjum upp hleðsluáætlun: hvenær er hlaðið, hve lengi og með hvaða afli
- Ákveðum fjölda og afl hleðslustöðva, AC og DC
- Reiknum stærð heimtaugar og sjáum um samskipti við dreifiveitu
- Hönnum hleðsluinnviðina: staðsetningu búnaðar á athafnasvæði, spennistöðvar, strengjaleiðir og rafmagnshönnun
- Metum sameiginlega nýtingu með almenningshleðslu þar sem það á við
Það sem þú færð
Hönnunarskýrslu með aflþörf, hleðsluáætlun, uppdráttum og kostnaðarmati. Grunn sem hægt er að fara með beint í útboð eða framkvæmd.
- Réttar stöðvar í réttri stærð
- Hve margar hleðslustöðvar þarf og hve öflug hver þeirra á að vera.
- Rafvæða núna, ekki þegar dreifikerfið er tilbúið
- Hve stóran hluta flotans núverandi heimtaug ber nú þegar.
- Allir fara fullhlaðnir
- Bílarnir hlaðnir og forhitaðir fyrir fyrstu ferð, sumar og vetur, skipulagt út frá áætluninni.
- Lægri aflkostnaður, á hverju ári
- Lægri afltoppur þýðir minni heimtaug og lægri aflgjöld.
- Svigrúm til að stækka
- Hve mörgum bílum má bæta við á stöðinni og hvenær þarf meira afl.
- Tilbúin fyrir slæma daginn
- Hvernig reksturinn ræður við bilaða hleðslustöð eða bíl sem kemur seint, og hve mikið svigrúm er í kerfinu.
Áfangaskipt uppbygging
Heimtaugin er ákveðin fyrir lokastöðu frá upphafi, jarðvinna og lagnaleiðir gerðar einu sinni og hleðslustöðvum bætt við eftir því sem bílum fjölgar. Dæmið hér að neðan er úr raunverulegu verkefni fyrir flutningafyrirtæki sem fer úr 2 í 20 rafknúna vörubíla.
| Áfangi | Vörubílar | Afltoppur | Heimtaug |
|---|---|---|---|
| Nú | 2 | um 70 kW | 315 A |
| Eftir 2 ár | 4 | um 135 kW | 315 A |
| Fullur floti | 20 | um 525 kW | 900 A |
35 kW á hvert tengi duga yfir nóttina. Jarðvinna er gerð einu sinni fyrir lokastöðu.
Áfallaþol
Við prófum hvað gerist þegar hleðslustöð bilar eða bíll kemur seint inn, og hve mikið svigrúm er í kerfinu áður en fyrsta ferð morgunsins raskast.
Það sem þú leggur fram
- Tímaáætlun eða vaktaplan
- Flotagögn: rafhlöðustærð og notkun
- Grunnmynd af stöðinni
- Raforkugjaldskrá
Engar mælingar þarf til að fá fyrsta svar. Vinnan fer að mestu fram í fjarvinnu og niðurstöður eru kynntar á netfundi.
Hafa samband
Sendu okkur áætlun og flotagögn og við metum hleðsluþörfina. Engar mælingar þarf til að fá fyrsta svar.
Hafa sambandTengd verkefni

Flutningafyrirtæki
Úr 2 í 20 rafknúna vörubíla í þremur áföngum
Aflþörf og áfangaskipt uppbygging hleðsluinnviða fyrir flutningafyrirtæki sem rafvæðir vörubílaflotann í skrefum. Ein hleðsluaðstaða í bækistöð dugar öllum flotanum.
2 → 4 → 20 vörubílar · 315 A → 900 A

Strætó bs. og Kynnisferðir
Hleðsluinnviðir í bækistöð fyrir 70 strætisvagna
Hönnun á hleðsluinnviðum fyrir 70 rafmagnsstrætisvagna í bækistöð, með 3,5 MW afli, háspennudreifingu innan svæðis og þremur spennistöðvum. Verkið lagði tæknilegan grunn að útboði.
3,5 MW · 70 vagnar · 3 spennistöðvar

Auðbert og Vigfús Páll ehf.
Hleðsla fyrir flutningabíla og almenning
Hleðsluinnviðir fyrir rafvæðingu flutningabíla, hannaðir þannig að sama uppsetning nýtist einnig sem hraðhleðsla fyrir almenning og rútur á fjölförnum ferðamannastað á Suðurlandi.
Floti + almenningshleðsla
Ertu að rafvæða flota?
Fyrsta samtalið er stutt og án skuldbindinga. Sendu okkur línu og við finnum út hvað þarf.
Senda tölvupóst- Netfang
- enord@enord.is
- Sími
- 840 4935
- Hrafn Leó Guðjónsson
- Staðsetning
- Reykjavík