Kröfulýsingar, útboð og innkaup
Útboð sem skila góðum niðurstöðum
Markaðurinn fyrir hleðsluinnviði býður upp á ólíkar tæknilausnir og viðskiptalíkön. Vel undirbúið útboð tryggir að tilboðin séu sambærileg, að kostnaðurinn sé þekktur fyrirfram og að samningurinn haldi í rekstri.

Fyrir hverja
Opinbera aðila sem bjóða út samkvæmt EES reglum, sveitarfélög, orkufyrirtæki og stærri fyrirtæki.
Hvað gerum við
- Gerum markaðskönnun (RFI) til að kortleggja lausnir áður en útboð er skrifað
- Gerum kostnaðaráætlanir fyrir innviði, rekstur og þjónustu
- Skilgreinum tæknilegar kröfur, þjónustustig og viðskiptalíkan (kaup, leiga, hleðsla sem þjónusta)
- Skrifum útboðsgögn, matslíkan og verðlíkan
- Svörum fyrirspurnum, metum tilboð og aðstoðum við samningsgerð
- Sjáum um samningsstjórnun og eftirfylgni á innleiðingu
Það sem þú færð
Kostnaðaráætlun, fullbúin útboðsgögn og matslíkan, og ráðgjöf gegnum allt ferlið frá RFI að undirrituðum samningi.
Hafa samband
Segðu okkur hvað á að kaupa og við leggjum til leiðina.
Hafa sambandTengd verkefni

Strætó bs.
Útboð á hleðslu sem þjónustu (CaaS)
Markaðskönnun og EES útboð á hleðsluinnviðum og rekstri þeirra sem þjónustu fyrir rafvagnaflota Strætó. Eitt fyrsta útboð sinnar tegundar á Íslandi.
RFI · EES útboð

Orka náttúrunnar
Útboð á bakendakerfi (CPMS) fyrir hleðslunet
Kröfulýsing, útboðsgögn og matslíkan fyrir nýtt bakendakerfi eins stærsta hleðslunets landsins, með áherslu á stöðugleika, uppitíma og framtíðarþjónustu.
CPMS · útboð
Ertu að rafvæða flota?
Fyrsta samtalið er stutt og án skuldbindinga. Sendu okkur línu og við finnum út hvað þarf.
Senda tölvupóst- Netfang
- enord@enord.is
- Sími
- 840 4935
- Hrafn Leó Guðjónsson
- Staðsetning
- Reykjavík