Hrafn Leó Guðjónsson

Hrafn Leó Guðjónsson

Rafmagnstæknifræðingur, stofnandi Enord

Um Enord

Enord er verkfræðiráðgjöf í Reykjavík sem sérhæfir sig í hleðsluinnviðum fyrir flota, rafhlöðukerfum og útboðum. Á bak við hana stendur Hrafn Leó Guðjónsson, rafmagnstæknifræðingur með yfir átta ára reynslu af hleðsluinnviðum og orkukerfum. Áherslan er á rafvæðingu flota, hleðslunet og rafhlöðukerfi þar sem flutningsgeta er takmörkuð.

Árið 2009 smíðaði Hrafn eigin rafbíl og ók honum hringinn í kringum landið, fyrstur til þess. Þá voru engar hleðslustöðvar til og hlaðið var á bæjum og í skólum á leiðinni. Síðan þá hefur hann unnið við hlið orkugeirans að því að byggja upp innviðina sem vantaði.

Enord selur hvorki hleðslustöðvar né búnað, svo ráðgjöfin miðast við flotann, aksturinn og bækistöðina. Enord er tæknilegur samstarfsaðili Elevathors, norræns nets sérfræðinga í hleðsluinnviðum og orkuskiptum.

  • Hleðsluinnviðir fyrir flota, AC og DC, í bækistöð og fyrir almenning
  • Hermun á hleðsluþörf, álagsstýring og stærð heimtauga
  • Rafhlöðukerfi, sólarorka og orkustýring þar sem flutningsgeta er takmörkuð
  • Kröfulýsingar, útboð og bakendakerfi fyrir hleðslunet

Ertu að rafvæða flota?

Fyrsta samtalið er stutt og án skuldbindinga. Sendu okkur línu og við finnum út hvað þarf.

Senda tölvupóst
Netfang
enord@enord.is
Sími
840 4935
LinkedIn
Hrafn Leó Guðjónsson
Staðsetning
Reykjavík