CPMS og vöruþróun fyrir rekstraraðila
Bakendinn er stýrikerfi hleðslunetsins
Rétt bakendakerfi (CPMS) ræður því hvaða þjónustu rekstraraðili getur boðið, hve stöðugt hleðslunetið er og hve auðvelt er að vaxa. Við hjálpum við að velja kerfið, skilgreina kröfur til þess og þróa nýja þjónustu ofan á það.

Fyrir hverja
Rekstraraðila hleðslustöðva (CPO), orkufyrirtæki og fyrirtæki sem reka eigið hleðslunet.
Hvað gerum við
- Skilgreinum kröfur til bakendakerfis: virkni, OCPP, reiki, greiðslur, vöktun og uppitíma
- Hönnum kerfisuppbyggingu (topology): hvernig hleðslustöðvar, bakendi, greiðslulausnir og önnur kerfi tengjast
- Aðstoðum við val á kerfi, innleiðingu og flutning milli kerfa
- Skilgreinum prófanir fyrir samþykkt kerfis
- Mótum greiðslulausnir og notendaupplifun
- Þróum nýja þjónustu: gjaldskrár, flotalausnir og snjallhleðslu
Það sem þú færð
Kröfulýsingu, kerfisuppbyggingu, samanburð kerfa, innleiðingaráætlun og stuðning við vöruþróun.
Hafa samband
Sendu okkur stutta lýsingu á hleðslunetinu og við metum hvort kerfið standist kröfur.
Hafa sambandTengd verkefni

Orka náttúrunnar
Útboð á bakendakerfi (CPMS) fyrir hleðslunet
Kröfulýsing, útboðsgögn og matslíkan fyrir nýtt bakendakerfi eins stærsta hleðslunets landsins, með áherslu á stöðugleika, uppitíma og framtíðarþjónustu.
CPMS · útboð

Strætó bs.
Útboð á hleðslu sem þjónustu (CaaS)
Markaðskönnun og EES útboð á hleðsluinnviðum og rekstri þeirra sem þjónustu fyrir rafvagnaflota Strætó. Eitt fyrsta útboð sinnar tegundar á Íslandi.
RFI · EES útboð
Ertu að rafvæða flota?
Fyrsta samtalið er stutt og án skuldbindinga. Sendu okkur línu og við finnum út hvað þarf.
Senda tölvupóst- Netfang
- enord@enord.is
- Sími
- 840 4935
- Hrafn Leó Guðjónsson
- Staðsetning
- Reykjavík