Öll verkefni
Orka náttúrunnar · Orkufyrirtæki
Útboð á bakendakerfi (CPMS) fyrir hleðslunet
Kröfulýsing, útboðsgögn og matslíkan fyrir nýtt bakendakerfi eins stærsta hleðslunets landsins, með áherslu á stöðugleika, uppitíma og framtíðarþjónustu.
CPMS · útboð

Áskorunin
Hleðslunet ON hafði vaxið hratt og spurningin var hvort núverandi bakendi stæði undir frekari vexti og nýrri þjónustu. Bakendakerfið hefur áhrif á upplifun viðskiptavina, greiðslur, uppitíma stöðva, reiki og allar nýjungar. Rangt val gæti hamlað samkeppnishæfni netsins árum saman, og skipti um kerfi verða flóknari eftir því sem netið stækkar.
Hvað gerðum við
- Skilgreindum tæknilegar kröfur og virknikröfur til bakendakerfis
- Skrifuðum útboðsgögn, matslíkan og verðlíkan fyrir bakendaþjónustu
- Mátum hvernig ólík kerfi styddu við upplifun viðskiptavina, stöðugleika, vöktun, samþættingar og nýja þjónustu
Niðurstaða
- Gagnsæ og samræmd leið til að bera saman bakendakerfi
- Kröfur byggðar á framtíðarþörfum netsins, ekki aðeins núverandi rekstri
- Ákvörðunarrammi fyrir val og innleiðingu á nýju kerfi
Lærdómur
Bakendakerfið er stýrikerfi hleðslunetsins. Rétt val snemma sparar mikið síðar.
Tengd þjónusta
Með svipað verkefni í huga?
Fyrsta samtalið er stutt og án skuldbindinga. Sendu okkur línu og við finnum út hvað þarf.
Senda tölvupóst- Netfang
- enord@enord.is
- Sími
- 840 4935
- Hrafn Leó Guðjónsson
- Staðsetning
- Reykjavík