Öll verkefni
Orka náttúrunnar · Hraðhleðslustöð
Álagsjöfnun með sólarorku og rafhlöðu
Sólarorka og rafhlaða samþætt við hraðhleðslustöð ON að Bæjarhálsi til að lækka afltoppinn á heimtaug og prófa lausnina við íslenskar aðstæður.
100 kW PV · 466 kWh BESS

Áskorunin
Hraðhleðslan að Bæjarhálsi skapaði háa afltoppa og álag á heimtaugina. Með vaxandi eftirspurn hækkuðu aflgjöld og staðurinn stefndi í að þurfa stærri heimtaug. ON vildi jafnframt afla reynslu af sólarorku og rafhlöðum í hleðsluinnviðum, sem var lítið reynt hér á landi.
Hvað gerðum við
- Hönnuðum kerfi með 100 kW sólarorku og 466 kWh rafhlöðu, samþætt við hraðhleðsluna
- Skilgreindum kerfisuppbyggingu, stýristefnu og álagsjöfnun
- Skrifuðum kröfulýsingu fyrir rafhlöðukerfi og samskipti við orkustýrikerfi
- Sáum um innkaupaferlið, mat á lausnum og val innan fjárhagsramma, í samskiptum við birgja og verktaka
Niðurstaða
- Lægri afltoppur á heimtaug og betri nýting hennar
- 100 kW sólarorka og 466 kWh rafhlaða í rekstri
- Tilraunakerfi sem gefur rekstrarreynslu fyrir aðrar hleðslustöðvar
Lærdómur
Þegar hraðhleðsla vex verður orkustýring jafn mikilvæg og hleðslustöðvarnar sjálfar.
Tengd þjónusta
Með svipað verkefni í huga?
Fyrsta samtalið er stutt og án skuldbindinga. Sendu okkur línu og við finnum út hvað þarf.
Senda tölvupóst- Netfang
- enord@enord.is
- Sími
- 840 4935
- Hrafn Leó Guðjónsson
- Staðsetning
- Reykjavík